Þann 3-5 júní verður úrtaka fyrir Landsmót hjá félögunum Sleipni, Ljúfi og Háfeta að Brávöllum Selfossi. Riðnar verða 2 umferðir. Skráning verður mánudaginn 30. maí milli kl. 19.00 – 22.00 í símum 849-4505/ 846-9750/ 691-6419. Skráningargjöld greiðast inná reikning 0152-26-100174 kt: 590583-0309 eigi síðar en þriðjudaginn 31. maí. Skráning ekki tekin gild nema greiðsla hafi borist. Skráningargjöld fyrri umferð 3000 kr. fyrir börn og unglinga og 4000 kr. fyrir ungmenni, A og B flokk. Skráningargjöld seinni umferð 1500 kr fyrir börn og unglinga og 3000 kr. fyrir ungmenni, A og B flokk.
Gæðingamótanefnd Sleipnis
